Færslur: 2012 Apríl
22.04.2012 23:01
Stórsýning Fáks
Stórsýningin Fáks var nú á laugardaginn og kom Barði þar fram með

knapa sínum honum Janusi. Þeir félagar fóru alveg á kostum og komu áhorfendum mikið á óvart
þegar hann Janus lét Barða leggjast með sig á baki. Já ég held að þetta hafi ekki verið sýnt áður af 1. verðlauna stóðhesti. Þessi mikli höfðingi er með einstaklega gott geðslag eins og þeir sýndu á
laugardaginn í Víðidalnum.
Reiðhallasýningin var í alla staði góð og sáum við mikið af frábærum hestum.
Frábært var að sjá fjölskylduatriðin.þ.a.m Mattara systkinin og Didda og fjölskyldu.
Og ég tala nú ekki um "Árbakka fjölskylduna "
Máttur frá Leirubakka var rúsínan í pylsuendanum á þessari sýningu og var hann
alveg frábærlega góður hjá Sigga Matt.
Hér er mynd af Barða sem tekin var á Allra Sterkustu sem fram fór í skautasvellinu í byrjun apríl. Hann kom þar fram á stóðhestakynningunni.
- 1